Saturday, April 12, 2003

Ný Glion Dagbók er á www.bluemania.blogspot.com

Thursday, March 27, 2003

Jæja, ég var að koma úr enskuprófi. Ég er eins og áður segir í síðasta enskuáfanganum í skólanum áður en ég fer í Shakespeare á 4. önn.
Ég er kominn með símaviðtal við Thistle Hotel Marble Arch á þriðjudag og svo daginn eftir er viðtal við Hilton Heathrow (bæði í London). Ég fór á starfssamningaskrifstofuna í dag og þau sögðu að hlutirnir litu ekki svo vel út fyrir London og þau hótel gætu endað með því að draga tilboðin til baka svo að ég sótti líka um í Taiwan í dag. Þar eru í boði 4 störf í Front Office, Food and Beverage og eldhúsi. Stjórinn er úr Glion (útskrifaður 92) og vill endilega fá okkur strax í sumar. Ég er spenntur fyrir Asíu og vill endilega svala þeim þorsta áður en námið er búið svo ég viti að hverju ég væri að ganga ef mér byðist starf þar að námi loknu. Það væri disaster að fara þangað strax eftir nám og segja upp innan árs. Það væru ekki góð meðmæli með mér í framtíðinni. En Stebbi, partnerinn hans pabba í hótelBRANSANUM er hræddur um að þetta sé of öfgakennt til að ég nái að yfirfæra reynsluna á Evrópumarkað sem ég óhjákvæmilega enda á (vonandi samt ekki fyrr en ég er orðinn 45).
Ég sendi gaurnum meil og bað hann að lýsa reynslunni að vinna þarna og hótelinu fyrir mér. Býð spenntur eftir svari. Annars er allt bara nokkuð gott að frétta. Bongó blíða á íslenskan mælikvarða þó að vinnuálagið þessa dagana hindri mann frá því að njóta þess. Í íþróttatíma fórum við þó niður á "ströndina" að spila BEACH VOLLEY en ég mátti ekki vera með út af ökklanum. Ég naut þess bara að liggja í ilmandi grasinu í MARS!!!!!!!!!!! Fékk jafnvel smá lit.
Við Linda, Jesper og Carlos verðum með kynningu á Marriott keðjunni í Introduction to Hospitality tíma á morgun og verðum í allt kvöld að undirbúa hana. Þetta gildir 12,5 % af lokaeinkunn og við erum vel undirbúin. Við tókum líka mynd af okkur með hendur á lofti í kveðjuskyni í lok PowerPoint slidessýningarinnar. Mjög asnalegt en myndin er góð og ég vonast til að geta sett tengil á hana hér á morgun.Þið bíðið bara spennt. Ég fór að vísu í klippingu um leið og við vorum búin að taka hana.
Jæja, ég lofa að taka mig saman í andlitinu með skrifin og gefa ykkur á klakanum nóg að tala um á næstu dögum.
Au Revoir!!!!!!Jesper að kremja mig og Grace.jpg

Monday, March 24, 2003

Sælinú!!!! Ég vona að sem flestir hafi fengið þetta nýja Bloggfang mitt.
Það var endalaust vesen með hina síðuna svo ég ákvað bara að taka auðveldu leiðina og færa mig um set. Hér ættuð þið ekki að þurfa að scrolla til hliðar til að lesa og svona og það er ekkert nema gott.
Nú er ég búinn að gleyma öllu sem ég hafði frá að segja í síðustu viku svo ég bara tala um helgina mína. Við fórum aðeins niður í bæ á föstudag og allir voru brjálæðislega hressir. Já ég "brákaði" á mér vinstri fótinn í 38-41 tapi gegn Nestlé í körfunni á miðvikudag og gat ekki gengið daginn eftir svo ég fór í röntgen og svona og mér var sagt að ég þyrfti hækjur í 6 daga eða svo en á föstudag komst ég af án þeirra svo ég hætti bara að nota þær. EN'IVEIS.
Við vorum á White Horse og allir í brjáluðu skapi; Carlos keypti Vodka flösku og Red Bull en ég var fastur á því að ég færi ekki á eitthvert fyllerí. Ég drakk mína bjóra og var bara rólegur. Fór þó með hinum á Copycat diskóið og það var fínt.
Á laugardag unnum við hörðum höndum að hópverkefni um Marriott keðjuna sem við þurfum að kynna í Introduction to Hospitality tíma á föstudag. Við unnum í 5 klst. og svo fórum við Jesper og fengum okkur Kebab og fórum bara heim að horfa á Swordfish á DVD. Ég var sofnaður klukkan 1 um nóttina.
Í gær var fótboltaleikur milli 1. og 3. annarinnar og ég var bara í marki til að slasa mig ekki. Við töpuðum 7-3 . James skoraði öll mörkin okkar og ég fékk bara 4 á mig. Dimitri, rússinn sem heldur að hann geti eitthvað í körfu en er bara sterabolti braut hnéskelina á Lee (kóreskur snillingur) á 5 stöðum og hann getur ekki gengið hjálparlaust næsta árið og hann verður á spítala í viku. Carlos var líka tæklaður ill 5 sek. fyrr og er nú að nota hækjurnar mínar. Held ég haldi mig bara við fótbolta í tölvuleikjum næstu vikurnar.!!!!!!
Hæ Ívar!!!

Sunday, March 23, 2003

Halló!!!!!

Friday, March 21, 2003

Thad er eitthvad mikid ad thessari sidu og eg er ad hugsa um ad skipta um blogg.

Wednesday, March 19, 2003

Það sem ég skrifaði í fyrradag man ég ekki þannig að ég nenni ekki að skrifa það. Ég var bara svolítið einmanna hér í fríinu án strákanna og ég var jafnvel feginn að sjá Carlos aftur en ekki lengi. Flestir virtust vera fegnir að vera komnir aftur og hafði hreinlega leiðst heima. Bókfærsluprófið var frekar auðvelt held ég en ég bíð eftir niðurstöðunum áður en ég monta mig.

Það er allt að verða vitlaust hérna. Ég er kominn á kaf í vinnu og hef samasem engann tíma fyrir blogg næstu 2 vikurnar. Það er endalaus vinna framundan og svo eru kennarar alltaf að koma með einhver heimskuleg hópverkefni sem verður að gera með dagsfyrirvara svo að maður þarf alltaf fyrirvaralaust að eyða öllu kvöldinu með fólki að leita að útskýringum á netinu og bókasafninu. Það er alltaf ósætti um hvernig á að koma upplýsingunum til skila og allt tekur mikið meiri tíma en ef maður gerði þetta bara sjálfur. En þetta er víst hluti af því að þroskast í teamwork en það er einn af þeim hlutum sem sker þennan bransa frá flestum öðrum. Jafnvel Jesper er búinn að játa sig sigraðan og það verður lítið ef eitthvað djammað næstu helgi. Það er bara of mikið að gera og stórar skýrslur og fyrirlestrar komast ekki á dagskrá á virkum dögum. Nú er maður að finna fyrir smá vöntun á skipulagi. Maður hefur alltaf getað gert hlutina með 2 daga fyrirvara en nú þarf maður að skipuleggja hvenær og hvernig maður leysir hlutina. Þetta er samt bara hluti af því að vera hótelstjóri. Alltaf verið að henda í mann verkefnum úr öllum áttum og maður verður bara að bretta ermarnar upp (það er auðvitað bannað að gera það bókstaflega) og forgangsraða og ganga í það.
Annars fer bara vel um mig og ég er að fara að spila við Nestlé í körfu í kvöld. Það ætti að vera athyglisvert. Svo er ég að reyna að fá Jesper og Vito til að koma til Genf með mér á laugardag til að safna upplýsingum fyrir hópverkefni. Föstud. í næstu viku þurfum við nefnilega að halda fyrirlestur um Marriott keðjuna og svo í þurfum við að vinna stóra Report um einhverja veitingahúsakeðju; taka viðtöl við toppana, fjalla um markaðinn þeirra, matseðil, söguna og allt. Það verður líka bara gaman að fara í rólegheitum um morguninn og skoða Genf svolítið. Fá sér snarl og koma heim um 5 og vinna aðeins í þessum verkefnum og taka svo góða skorpu á sunnudeginum. En svo má ekki gleyma að maður verður hreinlega að vinna upp svefnleysið um helgarnar. Ég hélt að þegar ég kæmi hingað myndi ég venjast því að vakna alltaf 7 og fara að sofa 11 eða 12 en ég er alltaf jafnþreyttur á morgnanna og einhvern veginn er miklu erfiðara að vera tilbúinn fyrir 10 klst. setu í skólastofum heldur en að vera á hreyfingu í vinnu. Maður er bara að ná 7 klst. svefni yfirleitt og ég veit að það er nóg fyrir suma en hér er maður virkilega þreyttur um klukkan 22 og þá er maður kannski rétt að koma heim eftir heimavinnu eða hópvinnu.
Allt í einu eftir hlé þyngdist skólinn um helming. Svona er þetta bara og ekkert að gera nema keyra á þetta og láta finna fyrir sér.

Monday, March 17, 2003

Ég var búinn að skrifa helling en það kom einhver villa upp og ég fékk það ekki inn og nú þarf ég að skrifa það allt upp aftur. Geri það í kvöld eða á morgun. OK? Ok